Kaðlapeysa – Námskeið

5.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 4. Ef ekki hefur verið tekið námskeið hjá okkur áður þá er þetta námskeið fyrir þá sem hafa prjónað stærri verkefni en vilja bæta við sig þekkingu og að læra að prjóna flóknari verkefni.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 5Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Kaðlapeysan sem er prjónuð í þessu námskeiði er peysa sem var prjónuð á einn af strákunum okkar áður en að Kvist varð til. Hann var í henni á nokkrum myndum frá upphafi þegar við vorum að taka myndir af Duggara húfunni og fengum við reglulega fyrirspurnir um peysuna svo við ákváðum að koma henni niður á blað og að setja upp sem námskeið.

Stærðir: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 5 ára (5 – 7 ára)

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Slétt og brugðið munstur
  • Perluprjón
  • Lesa munstur
  • Kaðlar
  • Telja umferðir í köðlum
  • Tengja ermar á búk
  • Laskasamantekt
  • U – hálsmál
  • Hálsmál saumað niður án affellingar
  • Lykkja saman undir höndum
  • Frágangur

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Þegar við þurfum að fella af
  • Telja umferðir í stroffi

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Merino Ull (hægt er að nálgast garnið undir vörur).

Prjónar: Hringprjón 40 cm/80cm* nr. 4 mm og 4 sokkaprjónar nr. 4 mm
*80cm prjón þarf bara á stærðir 3-5/5-7 ára, minni stærðir er hægt að prjóna alla leið á 40 cm hringprjón.

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðsla.

StærðGarnMagn
1 - 2 áraSandnes Merino Ull300gr
2 - 3 áraSandnes Merino Ull 300gr
3 - 5 áraSandnes Merino Ull350gr
5 - 7 áraSandnes Merino Ull 550gr

Vinsælar vörur með...

  • Lykke hringprjónar – 5 mm, 40 cm

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Lykke sokkaprjónar – 5 mm

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Sandnes Merino Ull

    1.590 kr.
    Skoða valmöguleika