Velkomin!

Fjarnámskeið & Uppskriftir

Þú stýrir hraðanum og tekur námskeið hvar og hvenær sem er

Ný rafbók með uppskriftum frá okkur – Leikskóla

Í þessari rafbók erum við búnar að taka saman nokkrar af barnauppskriftunum okkar, fullkomin fyrir leikskólaaldurinn 1-5 ára en allar uppskriftir eiga við breiðara aldursbil.

Hægt að sjá nánar um rafbókina hér


NÝTT



Langaði bara að segja hvað mér finnst þetta svo sjúklega flott allt hjá ykkur er búin að fylgja ykkur frá því að þið byrjuðuð með fyrsta námskeiðið og eruð alltaf að toppa ykkur í nýjum skemmtilegum vörum! Bara áfram þið !


VINSÆLUSTU NÁMSKEIÐIN


UPPSKRIFTIR


LYKKE


LEIÐBEININGAR

Hvernig virkar námskeiðið?

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Hvernig á ég að velja námskeið?

Fyrir hvert námskeið höfum við gefið því erfiðleikastuðul, 1 fyrir auðveldast, og þar af leiðandi fyrir byrjendur, og svo 2 fyrir næstu námskeið sem er hægt að taka eftir það og svo koll af kolli. Flóknustu verkefnin fá erfiðleikastuðulinn 5.  Einnig eru lýsing inn í hverju námskeiði þar sem er merkt við þau atriði sem farið er yfir í hverju námskeiði fyrir sig. Ef þú ert samt ekki alveg viss, þá endilega sendu okkur línu á kvistknitting@kvist.is eða skilaboð á Instagram eða Facebook og við hjálpum þér að finna það sem hentar hverjum og einum. 

Lesa meira


GOTT AÐ VITA…

Til að hafa í huga

  • “Allt sem er eitthvers virði tekur tíma” á sérstaklega vel við prjón. Það er mikilvægt að hafa í huga þegar byrjað er á verkefni að gefa sér tíma. Ekki byrja á peysu fyrir Verslunarmannahelgi í lok Júlí (nema þú sért vön að klára peysur á stuttum tíma). Það geta alltaf komið upp mistök sem þarf að leiðrétta. Við viljum að prjón sé skemmtilegt og slakandi og því nauðsynlegt að gefa sér góðann tíma til að klára verkefni. 
  • Ef þú ert að fara gera eitthvað í fyrsta skipti þá eru ágætar líkur á að það komi ekki nákvæmlega út eins og þú vildir. Við mælum með því að æfa sig, hægt er að gera litlar prufur til að prófa sig áfram í allskonar prjóni og halda síðan áfram með verkefnið
  • Það er hægt að laga allt! Það er gott að skoða leiðir til að laga mistök áður en við ákveðum að verkefnið sé ónýtt og hendum því út í horn…

Lesa meira


GJAFABRÉF

Við bjóðum upp á persónuleg gjafabréf fyrir vinkonur og vini. Þú velur námskeiðið og textann, við sendum þér svo PDF til prentunar.

Tilvalin gjöf fyrir hvern sem er. Sendu okkur póst á kvistknitting@kvist.is og við setjum þetta upp sérstaklega fyrir þig.

Lesa meira