Fyrsta Peysa – Námskeið

5.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.

Þegar við settum upp þetta námskeið vildum við setja upp klassíska peysu sem væri auðvelt að prjóna. Fullkomin fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í örlítið flóknara verkefni. Þetta námskeið inniheldur tvær peysur eða stroff og kant peysuna. Þetta er í rauninni ein og sama peysan nema með mismunandi smátriðum. En það er undir þér sjálfum komið hvora peysuna þú gerir eða hvort þú gerir báðar.

Stærðir: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 5 ára (5 – 7 ára)

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Fitja upp á sokkaprjóna
  • Tengja sokkaprjóna
  • Gera gatamunstur
  • Auka út á ermum
  • Tengja ermar á búk
  • Laskaúrtaka
  • Að lykkja saman undir höndum
  • Teygjanleg affelling
  • Kantur saumaður niður
  • Frágangur

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garni
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar við þurfum að prjóna tilbaka
  • Þegar við þurfum að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við byrjum á nýjum hnykli
  • Þegar við þurfum að fella af
  • Þegar skipta þarf yfir á annan prjón

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Alpakka Ull (við kaupum Sandnes Alpakka Ull í Fjarðarkaup)

Prjónar: Hringprjón 40 cm/80cm* nr. 5 mm og 4 sokkaprjónar nr. 5 mm
*80cm prjón þarf bara á stærðir 3-5/5-7 ára, minni stærðir er hægt að prjóna alla leið á 40 cm hringprjón.

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

StærðGarnMagn - Stroff peysaMagn - Kant peysa
1-2 áraSandnes Alpakka Ull200 gr250gr
2-3 áraSandnes Alpakka Ull250 gr250gr
3-5 áraSandnes Alpakka Ull300 gr300 gr
5-7 áraSandnes Alpakka Ull350 gr350 gr