Bangsa peysa

990 kr.

Við vildum gera peysu í “teddy” útfærslu og úr varð Bangsapeysan. Peysan er gerð úr yndislega Teddy Dear frá Gepard og er hún prjónuð ofan frá í garðaprjóni. Alltaf þegar við skrifum nýja uppskrift er það eitthvað sem börnin okkar eða aðrir í kringum okkur vantar eða langar í. Bangsapeysan var gerð fyrir dóttur annarar okkar og hún elskar peysuna er svo létt og þægileg ♡

Garnið í peysuna er hægt að kaupa í Gallery Spuni – Handprjón

Prjónafesta: 13 lykkjur í munstri gera 10 cm – Minnum við á mikilvægi prjónafestu áður en byrjað er á verkefninu. 

Stærðir : 1-2 ára (2-3 ára) 3-5 ára (5-8 ára) 

Þó að flestar okkar uppskriftir séu byrjendavænar þá mælum við ekki með þessari uppskrift fyrir byrjendur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!
Categories: ,

Viðbótar upplýsingar

Garn: Gepard Teddy Dear, 100 % náttúrulegt 40 % Alpaca Superfine 60 % Merino ull. Engin aukaefni. (75m/ 50gr, nr 6-10)

Prjónar:

4x sokkaprjónar nr 6 og 40 og 80 cm cm hringprjón nr 6.

Nál, skæri, málband og tölur

StærðGarnMagn
1 - 2 áraGepard Teddy Dear150g
2 - 3 áraGepard Teddy Dear200g
3 - 5 áraGepard Teddy Dear250g
5 - 8 áraGepard Teddy Dear300g