Ungbarnateppi – Námskeið

1.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur verið í handavinnu í grunnskóla þá er gott að byrja hér.

En teppið hentar jafnt fyrir byrjendur sem og lengra komna. Okkur langar þó að benda á að prjóna teppi tekur töluverðan tíma og ef þú ert byrjandi þá mælum við með að vera með annað lítið verkefni með þessu. 

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 2Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Það er ein stærð á teppinu.

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Fitja upp
  • Prjóna slétta lykkju
  • Prjóna garðarprjón
  • Fella af
  • Hekla kant
  • Ganga frá endum

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna enda á garni
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar við þurfum að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við byrjum á nýjum hnykli
  • Fastalykkjur/Loftlykkjur

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Viðbótar upplýsingar

Stærð                        Garn                                    Magn
Ein stærð                  Sandnes Baby Lanett        350g

Garn: Sandnes Baby Lanett (við kaupum Sandnes garn í Fjarðarkaup)

Prjónar: Hringprjónn 80 eða 100 cm nr. 4 / Heklunál nr. 3

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

Vinsælar vörur með...

  • Lykke hringprjónar – 3 mm, 60 cm

    1.490 kr.
    Setja í körfu
  • Sandnes Baby Lanett

    990 kr.
    Skoða valmöguleika