Ungbarnabuxur – Námskeið

3.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Þessar buxur voru settar upp til að passa sem sett með Fyrstu ungbarnapeysunni en þeir sem hafa fylgst með okkur og sjá vöruúrvalið hér inni vita að við elskum sett. Hefðbundnar buxur sem eru símunstraðar með sléttri og brugðinni lykkju, með klofbót að aftan til að búa til smá pláss fyrir bleyjuna.

Stærðir: 0 – 3 mánaða (3 – 6 mánaða) 6 – 12 mánaða (12 – 18 mánaða) 18 – 30 mánaða

Farið er yfir eftirfarandi:

  •  Prjóna buxur ofan frá og niður
  • Prjóna slétt og brugðið munstur
  • Prjóna á hringprjón
  • Skipta yfir á annan prjón
  • Prjóna á sokkaprjóna
  • Lesa munstur/telja út munstur
  • Taka saman lykkjur á skálm
  • Auka út við klofbót
  • Flytja lykkjur á band til að geyma fyrir klofbót
  • Fella af
  • Lykkja saman
  • Frágangur
  • Lesa uppskriftir

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar við þurfum að prjóna tilbaka
  • Þegar við þurfum að rekja upp stórann hluta

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Baby Lanett (við kaupum Sandnes Baby Lanett í Fjarðarkaup)

Prjónar: Hringprjónar, 40 cm nr. 3 mm  og nr. 2.5mm / 4x sokkaprjónar nr. 3 mm og nr. 2.5 mm

Nál, skæri, málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

StærðGarnMagn
0 - 3 mánaðaSandnes Baby Lanett100gr
3 - 6 mánaðaSandnes Baby Lanett100gr
6 - 12 mánaðaSandnes Baby Lanett150gr
12 - 18 mánaðaSandnes Baby Lanett150gr
18 - 30 mánaðaSandnes Baby Lanett150gr