Viðbótar upplýsingar
Garn: Sandnes Baby Lanett. Hægt er að kaupa garnið hér eða hjá Tinnu ehf.
Prjónar: Hringprjónar, 40 cm nr. 3 mm og 5x sokkaprjónar nr. 3 mm
Nál, skæri, málband
Dúskur og smella er valkvætt.
Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.
Stærð | Garn | Magn |
0-3 mánaða | Sandnes Baby Lanett | 25g |
3-6 mánaða | Sandnes Baby Lanett | 28g |
6-9 mánaða | Sandnes Baby Lanett | 32g |
9-12 mánaða | Sandnes Baby Lanett | 35g |
*Ath, þyngdin getur breyst eftir því hvort eyru séu sett á húfuna og hvort snúrubönd séu gerð eða smelluband. Þessi tafla er eingöngu til viðmiðunar
Að greiðslu lokinni kemur tölvupóstur með PDF skjali til niðurhals sem inniheldur uppskriftina.