Kaðla vettlingar – Námskeið

3.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.

Dóttir annarrar okkar vantaði vettlinga svo við fórum að leggja höfuðið í bleyti varðandi útlit þeirra því við vildum ekki hafa þá alveg klassíska. Við það urðu Kaðla vettlingarnir til og hafa verið prjónaðir ófáir síðan.

Stærðir: 12 – 18 mánaða (18 – 24 mánaða) 2 – 3 ára (3 – 5 ára) 5 – 7 ára (7 – 9 ára) Minni fullorðins (s/m) (Stærri fullorðins (l/xl))

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Fitja upp á sokkaprjóna
  • Tengja uppfit á sokkaprjónum
  • Auka út
  • Gera kaðal
  • Lesa munstur
  • Telja umferðir
  • Setja þumal
  • Gera úrtöku fyrir vettlinga

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Ef við missum lykkju þegar þumall er þræddur upp
  • Þegar við þurfum að fella af

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Drops Merino Extra Fine (við kaupum Drops garn í Handverkskúnst) og Dale Falk (við kaupum Dale í A4)

Prjónar: 4 sokkaprjóna nr. 3,5 / 5 sokkaprjónar nr. 4

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

StærðGarnMagn
12 - 18 mánaðaDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
18 - 24 mánaðaDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
2 - 3 áraDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
3 - 5 áraDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
5 - 7 áraDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
7 - 9 áraDrops Merino Extra Fine / Dale Falk50g
Minni fullorðinsDrops Merino Extra Fine / Dale Falk100g
Stærri fullorðinsDrops Merino Extra Fine / Dale Falk100g

 

Vinsælar vörur með...