Þriðja ungbarnahúfan – Námskeið

2.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Við höfum verið að prófa okkur áfram með munstrið sem er í ungbarnapeysunni og buxunum til að búa til heilt sett sem er í sömu línu. Núna eru þriðja ungbarnahúfan og aðrir ungbarnavettlingar tilbúin með það í huga, að fullkomna fyrstu ungbarnalínuna okkar.

Húfan býður upp á margar útgáfur en svo virðist sem við getum ekki fullklárað ungbarnahúfu nema prófa að setja á hana eyru! Þessa húfu er hægt að prjóna aftur og aftur með smá breytingum í hvert skipti og tilvalin sem námskeið þar sem farið er yfir mikið af efni.

Þeir sem hafa lokið námskeiði á Þriðju ungbarnahúfunni fá kóða sem gefur 50% afslátt af námskeiði af öðrum ungbarnavettlingum.

Stærðir: 0 – 3 mánaða (3 – 6 mánaða) 6 – 9 mánaða (9 – 12 mánaða)

Farið er yfir eftirfarandi:

    • Fitja upp
    • Tengja uppfit í hring
    • Prjóna fram og tilbaka
    • Prjóna stroff
    • Lesa munstur
    • Auka út
    • Taka saman
    • Prjóna á sokkaprjóna
    • Draga í gegnum lykkjur
    • Búa til eyru
    • Gera snúrubönd
    • Festa smellu 

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Ef við missum lykkju þegar þumall er þræddur upp
  • Þegar við þurfum að fella af

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Baby Lanett. Hægt er að kaupa garnið hér eða hjá Tinnu ehf.

Prjónar: Hringprjónar, 40 cm nr. 3 mm  og  5x sokkaprjónar nr. 3 mm

Nál, skæri, málband
Dúskur og smella er valkvætt.

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

Stærð GarnMagn
0-3 mánaðaSandnes Baby Lanett25g
3-6 mánaðaSandnes Baby Lanett28g
6-9 mánaðaSandnes Baby Lanett32g
9-12 mánaðaSandnes Baby Lanett35g

*Ath, þyngdin getur breyst eftir því hvort eyru séu sett á húfuna og hvort snúrubönd séu gerð eða smelluband. Þessi tafla er eingöngu til viðmiðunar

Að greiðslu lokinni kemur tölvupóstur með PDF skjali til niðurhals sem inniheldur uppskriftina.