Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur verið í handavinnu í grunnskóla þá er gott að byrja hér.
Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 2. Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér
Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.
Önnur húfa kemur bæði í fullorðins og barnastærðum. Fullorðins húfan er prjónuð úr Sandnes Double Sunday og Sandnes Silk Mohair á meðan barna húfan er prjónuð úr Sandnes Sunday og Sandnes Tynn Silk Mohair. Með kaupum fylgja uppskriftir fyrir báðar útgáfur.
Okkur langaði að gera þykka og góða húfu fyrir veturinn og úr varð Önnur húfan. Skemmtileg tækniatriði eru í húfunni en þar er t.d. farið yfir opið uppfit og slétta snúna lykkju.
Stærðir fullorðins: S/M (M/L)
Stærðir barna: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 5 ára
Farið er yfir eftirfarandi:
Opið uppfit
Prjóna snúna lykkju
Prjóna brugðið
Færa lykkjur yfir á prjón
Snúa lykkjum rétt á prjóni
Prjóna saman stykki
Samantekt með sléttum lykkjum þannig að þær vísi til hægri og vinstri
Samantekt með brugðnum lykkjum
Prjóna með sokkaprjónum
Loka topp á húfu
Ganga frá endum
Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.
Prjónar fullorðins: Hringprjón 40 cm nr. 5 / 5 sokkaprjóna nr. 5 (1x 40 cm hringprjónn nr. 3.5 – 4.5, eingöngu notaður sem hjálparprjónn) Prjónar barna: Hringprjóna 40 cm nr. 4 / 5 sokkaprjóna nr. 4 (1x 40 cm hringprjón nr. 3 – 3.5, eingöngu notaður sem hjálparprjónn)
Kvist knitting notar vafrakökur til að auðvelda notkun þína á vefnum. Um vafrakökurSamþykkja
Privacy & Cookies Policy
Vafrakökur
Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja góða upplifun fyrir notendur. Vafrakaka (e. Cookie) er lítil textaskrá sem vafrinn vistar í tölvuna þína eða snjalltæki þegar þú heimsækir þennan vef. Upplýsingarnar í kökunni má nota til að fylgjast með vafri notenda á vefsvæðinu og þær upplýsingar til að bæta vefinn, þjónustuna o.fl.
Með því að samþykkja skilmála Kvist.is um notkun á vafrakökum er okkur m.a. veitt heimild til þess að
Bera kennsl á notendur sem hafa komið áður á vefinn og sníða leit og þjónustu við gestina til samræmis við auðkenninguna.
Að gera notendum auðveldara að vafra um vefsvæðið, til dæmis með því að muna eftir fyrri aðgerðum.
Að þróa og bæta þjónustu vefsvæðisins með því að fá innsýn í notkun hennar.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
Any cookies that may not be particularly necessary for the website to function and is used specifically to collect user personal data via analytics, ads, other embedded contents are termed as non-necessary cookies. It is mandatory to procure user consent prior to running these cookies on your website.