Kaðlasokkar – Námskeið

3.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Sokkar voru alltaf ofarlega á óskalista hjá fylgjendum þegar spurt var um hvað ætti að prjóna næst. Því urðu kaðlasokkarnir til og ekki skemmdi fyrir að þeir ganga með kaðla vettlingunum okkar. Við erum hrifnar að köðlum, fallegt smáatriði sem skemmtilegt er að læra

Stærðir 22 – 23 (24 – 25) 26 – 28 (29 – 31) 32 – 34 (35 – 37) 38 – 40

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Fitja upp á sokkaprjóna
  • Tengja uppfit á sokkaprjónum
  • Auka út
  • Gera kaðal
  • Taka saman
  • Lesa munstur
  • Gera hæl
  • Gera úrtöku fyrir tá
  • Draga í gegn

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Ef við missum lykkju þegar þumall er þræddur upp
  • Þegar við þurfum að fella af

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Merino Ull (hægt er að nálgast garnið undir vörur)

Prjónar: 5 sokkaprjóna nr. 4

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðslna.

StærðGarnMagn
22-23Sandnes Merino Ull50 gr
24-25Sandnes Merino Ull100 gr
26-28Sandnes Merino Ull100 gr
29-31Sandnes Merino Ull100 gr
32-34
Sandnes Merino Ull100 gr
35-37Sandnes Merino Ull 100 gr
38-40Sandnes Merino Ull100 gr

Vinsælar vörur með...