Fyrstu buxur – Námskeið

3.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.

Þar sem við elskum sett þá lá beinast við að gera buxur í stíl við Fyrstu peysuna. Í þessu námskeiði færðu aðgengi bæði að stroff- og kantbuxunum en þetta eru í raun sömu buxurnar með mismunandi smáatriðum. En það er undir þér sjálfum komið hvorar buxurnar þú gerir eða hvort þú gerir báðar.

Stærðir: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 4 ára (4 – 5 ára

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Prjóna buxur ofan frá og niður
  • Fitja upp
  • Prjóna slétt og brugðið
  • Gera gatamunstur
  • Skipta prjónastykki í skálmar
  • Útaukning
  • Úrtaka
  • Teygjanleg affelling
  • Hefðbundin affelling
  • Teygja sett í mitti
  • Frágangur

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Þegar við þurfum að fella af
  • Telja umferðir í stroffi

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Alpakka Ull (við kaupum Sandnes Alpakka Ull í Fjarðarkaup)

Prjónar: Hringprjón 40 cm nr. 5 mm og 4 sokkaprjónar nr. 5 mm
Teygja, 1,8 cm á breidd.

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðsla.

Stærð Garn Magn
1 - 2 áraSandnes Alpakka Ull150 gr
2 - 3 áraSandnes Alpakka Ull200 gr
3 - 4 áraSandnes Alpakka Ull200 gr
4 - 5 áraSandnes Alpakka Ull250 gr

Vinsælar vörur með...

  • Lykke sokkaprjónar – 5 mm

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Sandnes Alpakka Ull

    1.090 kr.
    Skoða valmöguleika
  • Lykke hringprjónar – 5 mm, 40 cm

    1.590 kr.
    Setja í körfu