Fyrsta peysa og buxur – Námskeið

8.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.

Þetta námskeið inniheldur bæði Fyrstu peysuna og Fyrstu buxurnar. En þegar við settum upp þau námskeið þá vildum við klassískt útlit sem væri auðvelt að prjóna. Fullkomið fyrir þá sem vilja reyna fyrir sér í örlítið flóknari verkefnum. Námskeiðið inniheldur bæði stroff og kant útgáfuna af peysunni og buxunum, en þetta er í rauninni ein og sama flíkin en með mismunandi smáatriðum. En það er undir þér sjálfum komið hvora útgáfuna þú gerir eða hvort þú gerir báðar.

Gott er að vita að peysan og buxurnar eru ekki gefnar upp í nákvæmlega sömu stærðum: 

Stærðir peysa: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 5 ára (5 – 7 ára)

Stærðir buxur: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 4 ára (4 – 5 ára)

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Prjóna buxur ofan frá og niður
  • Fitja upp
  • Prjóna slétt og brugðið
  • Gera gatamunstur
  • Skipta prjónastykki í skálmar
  • Útaukning
  • Úrtaka
  • Teygjanleg affelling
  • Hefðbundin affelling
  • Teygja sett í mitti
  • Frágangur
  • Fitja upp á sokkaprjóna
  • Tengja sokkaprjóna
  • Auka út á ermum
  • Tengja ermar á búk
  • Laskaúrtaka
  • Að lykkja saman undir höndum
  • Kantur saumaður niður

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar þarf að prjóna tilbaka
  • Þegar þarf að rekja upp stórann hluta
  • Þegar við þurfum að byrja á nýjum hnykli
  • Þegar við þurfum að fella af
  • Telja umferðir í stroffi

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Alpakka Ull (við kaupum Sandnes Alpakka Ull í Fjarðarkaup)

Prjónar: Hringprjón 40 cm/80cm* nr. 5 mm og 4 sokkaprjónar nr. 5 mm
*80cm prjón þarf bara á peysur í stærð 3-5 / 5-7 ára, minni stærðir er hægt að prjóna alla leið á 40 cm hringprjón.
Teygja, 1,8 cm á breidd.

Nál, skæri og málband

Þegar garn er keypt fyrir verkefni þarf að skoða vel hvort framleiðslunúmerið á dokkunum sé það sama, því oft getur verið litamunur á milli framleiðsla.

StærðGarnMagn - Stroff peysaMagn - Kant peysa
1-2 áraSandnes Alpakka Ull200 gr250gr
2-3 áraSandnes Alpakka Ull250 gr250gr
3-5 áraSandnes Alpakka Ull300 gr300 gr
5-7 áraSandnes Alpakka Ull350 gr350 gr
Stærð Garn Magn
1 - 2 áraSandnes Alpakka Ull150 gr
2 - 3 áraSandnes Alpakka Ull200 gr
3 - 4 áraSandnes Alpakka Ull200 gr
4 - 5 áraSandnes Alpakka Ull250 gr

Vinsælar vörur með...

  • Lykke sokkaprjónar – 5 mm

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Sandnes Alpakka Ull

    1.090 kr.
    Skoða valmöguleika
  • Lykke hringprjónar – 5 mm, 80 cm

    1.590 kr.
    Setja í körfu
  • Lykke hringprjónar – 5 mm, 40 cm

    1.590 kr.
    Setja í körfu