Önnur húfa – Námskeið

2.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur verið í handavinnu í grunnskóla þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 2Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Önnur húfa kemur bæði í fullorðins og barnastærðum. Fullorðins húfan er prjónuð úr Sandnes Double Sunday og Sandnes Silk Mohair á meðan barna húfan er prjónuð úr Sandnes Sunday og Sandnes Tynn Silk Mohair. Með kaupum fylgja uppskriftir fyrir báðar útgáfur.

Okkur langaði að gera þykka og góða húfu fyrir veturinn og úr varð Önnur húfan. Skemmtileg tækniatriði eru í húfunni en þar er t.d. farið yfir opið uppfit og slétta snúna lykkju.

Stærðir fullorðins: S/M (M/L)

Stærðir barna: 1 – 2 ára (2 – 3 ára) 3 – 5 ára 

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Opið uppfit
  • Prjóna snúna lykkju
  • Prjóna brugðið
  • Færa lykkjur yfir á prjón
  • Snúa lykkjum rétt á prjóni
  • Prjóna saman stykki
  • Samantekt með sléttum lykkjum þannig að þær vísi til hægri og vinstri
  • Samantekt með brugðnum lykkjum
  • Prjóna með sokkaprjónum
  • Loka topp á húfu
  • Ganga frá endum

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn fullorðins: Sandnes Double Sunday (litur: 3821)  og Sandnes Silk Mohair (litur: 1015).
Garn barna: Sandnes Sunday (litur 2511) og Sandnes Tynn Silk Mohair (litur 1012).

Hægt er að kaupa garnið hjá Tinnu ehf.

Prjónar fullorðins: Hringprjón 40 cm nr. 5 / 5 sokkaprjóna nr. 5 (1x 40 cm hringprjónn nr. 3.5 – 4.5, eingöngu notaður sem hjálparprjónn)
Prjónar barna: Hringprjóna 40 cm nr. 4 / 5 sokkaprjóna nr. 4 (1x 40 cm hringprjón nr. 3 – 3.5, eingöngu notaður sem hjálparprjónn)

Nál, skæri og málband

StærðGarnMagnGarnMagn
S / MSandnes Double Sunday150gSandnes Silk Mohair50g
M / L Sandnes Double Sunday 150gSandnes Silk Mohair50g

StærðGarnMagnGarnMagn
1 -2 áraSandnes Sunday50gSandnes Tynn Silk Mohair25g
2 - 3 áraSandnes Sunday 50gSandnes Tynn Silk Mohair25g
3 - 5 áraSandnes Sunday 50gSandnes Tynn Silk Mohair25g