Viðbótar upplýsingar
Garn: Sandnes Baby Lanett 50 gr fyrir allar stærðir.
(við kaupum Sandnes Baby Lanett í Fjarðarkaup)
Prjónar: 4x sokkaprjónar nr. 3.
Nál, skæri og málband
Original price was: 1.590 kr..1.113 kr.Current price is: 1.113 kr..
Um námskeið
Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa tekið byrjendanámskeið eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur verið í handavinnu í grunnskóla þá er gott að byrja hér.
Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 2. Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér
Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða.
Þegar ungbarnavettlingarnir voru settir upp höfðum við í huga að hafa þá einfalda og þægilega í framkvæmd en farið er vel yfir slétta og brugðna lykkju og henta því byrjendum og þeim sem vilja lítið og þægilegt verkefni. Enginn þumall er á vettlingunum svo auðvelt er að klæða börnin í þá þessa fyrstu mánuði og henta vel í vagninn eða bílstólinn.
Stærðir: 0 – 3 mánaða (3 – 6 mánaða) 6 – 12 mánaða
Farið er yfir eftirfarandi:
Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:
Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.
Garn: Sandnes Baby Lanett 50 gr fyrir allar stærðir.
(við kaupum Sandnes Baby Lanett í Fjarðarkaup)
Prjónar: 4x sokkaprjónar nr. 3.
Nál, skæri og málband