Ungbarnasokkar – Námskeið

1.990 kr.

Um námskeið

Þetta námskeið er hugsað fyrir þá sem hafa lokið við námskeið á erfiðleikastigi 2 eða hafa smá grunn en vilja bæta við sig þekkingu, t.d. ef þú hefur eitthvað prjónað í gegnum tíðina eða lokið við minna og einfaldara verkefni þá er gott að byrja hér.

Námskeiðið er metið sem erfiðleikastig: 3Nánar um erfiðleikastig námskeiða má sjá hér

Námskeiðið er sett upp á PDF skjali sem þú færð sent í tölvupóst eftir að greiðsla berst. Skjalið inniheldur uppskrift og aðferð, en í hverju skrefi er síðan tengill sem fer með þig á Youtube og þar er farið yfir það sem á að gera það skiptið. Þú getur því horft á hvert myndband eins oft og þú vilt, þegar þér hentar og gert þetta algjörlega á þínum hraða. 

Við vildum hafa ungbarnasokkarnir í stíl við ungbarnavettlingana, stílhreinir og ganga við allt. Það er farið vel yfir slétta og brugðna lykkju í verkefninu en einnig er prjónaður hæll, en það er vel útskýrt hvernig á að bera sig að í því og fylgja kennslumyndbönd sem fara vel yfir ferlið.

Stærðir: 0 – 3 mánaða og 3 – 6 mánaða

Farið er yfir eftirfarandi:

  • Fitja upp
  • Prjóna á sokkaprjóna
  • Tengja sokkaprjóna í hring
  • Prjóna stroff
  • Taka upp lykkjur
  • Prjóna hæl
  • Skipta um prjóna
  • Taka lykkjur saman
  • Lykkja saman
  • Ganga frá

Aukaefni sem fylgir námskeiði eru kennslumyndbönd sem fara yfir:

  • Prjónatækni
  • Finna endann á garninu
  • Þegar við missum niður lykkju
  • Þegar við prjónum í ranga átt
  • Þegar við þurfum að prjóna tilbaka
  • Þegar við þurfum að rekja upp stórann hluta

Það er gaman að segja frá því að við kaup á námskeiði hjá okkur heldur þú ótakmörkuðu aðgengi að öllu kennsluefni og getur því alltaf leitað í það eða skoðað kennslumyndböndin aftur.

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Baby Lanett 50 gr fyrir allar stærðir.
(við kaupum Sandnes Baby Lanett í Fjarðarkaup)

Prjónar: 4x sokkaprjónar nr. 2.5 mm og 5x sokkaprjónar nr. 3 mm

Nál, skæri, málband

 

 

Vinsælar vörur með...