Skotthúfa

690 kr.

Okkur hefur lengi langaði að gera jólahúfu og úr varð þessi skotthúfa sem hægt er að gera í nokkrum útfærslum, sem er eithvað sem við reynum að hafa í boði í okkar uppskriftum ef við getum. Okkur þykir svo gaman að skapa og vonum að fólk fái smá útrás fyrir því að skapa þegar nokkrir möguleikar eru í boði. Húfan er prjónuð í sléttuprjóni, með einfaldri samantekt til að mynda skottið, hægt er að bæta við hekluðum kanti ef maður vill. Í lokin er gerður einfaldur dúskur. Þægilegt verkefni fyrir þá sem eru að byrja prjónaferilinn sem og lengra komna.

Prjónafesta: 23 lykkjur og 30 umferðir gera 10×10 cm – Minnum við á mikilvægi prjónafestu áður en byrjað er á verkefninu. 

Stærðir : 3 – 9 mánaða (9 – 18 mánaða) 18 – 36 mánaða (3 – 6 ára) 6 – 9 ára

Finnst þér þessi vara fullkomin fyrir vin? Þú getur keypt gjafakort fyrir þennan hlut!
Categories: , ,

Viðbótar upplýsingar

Garn: Sandnes Merinoull (105 m/50 g, prjónastærð: 3,5 mm), hægt er að kaupa garnið hjá Tinnu ehf og í Fjarðarkaup

Prjónar:

4x sokkaprjónar nr 4 og 40 cm hringprjón nr 4

Heklunál nr. 3,5 (fyrir dúllu)

Nál, skæri, málband og pappa fyrir dúsk

StærðGarnMagn
Tvílit
3 - 9 mánaðaSandnes Merino100g50g/100g
9 - 18 mánaðaSandnes Merino150g50g/100g
18 - 36 mánaðaSandnes Merino150g50g/150g
3 - 6 áraSandnes Merino150g100g/150g
6 - 9 áraSandnes Merino200g100g/150g