Lykke sokkaprjónar

1.390 kr.1.590 kr.

Lykke prjónarnir eru tréprjónar sem eru framleiddir í Nepal en Driftwood gerðin sem við erum með hjá okkur er búin til úr Birkivið sem er sambærilegur við úr Hlyn varðandi styrk og endingu. Prjónarnir eru handgerðir og hægt að sjá að í þá er mikið lagt. 

Oddurinn á prjónunum er góður millivegur, ekki of fíngerður og ekki of grófur og virkar því vel með flestum garntegundum en samt góður fyrir fínt prjón. Á prjónunum er stærð prjónsins merkt, bæði evrópskt stærð og amerísk og eftir þó nokkra notkun virðist stærðin ekkert nuddast af. Það sem grípur helst er þó liturinn á prjónunum en það eru ekki margir prjónar á markaðnum með svona gráum tón í bland við jarðarliti. Þeir eru ótrúlega fallegir og gera prjónið, í hvaða lit sem það er, fallegra fyrir augað.

SKU: N/A Category:

Viðbótar upplýsingar

Allir sokkaprjónarnir eru í 15 cm lengd.

Vinsælar vörur með...