Lykke aukahlutir – prjónar
990 kr. – 1.190 kr.
Lykke prjónarnir eru tréprjónar sem eru framleiddir í Nepal. Prjónarnir eru handgerðir og hægt að sjá að í þá er mikið lagt.
Oddurinn á prjónunum er góður millivegur, ekki of fíngerður og ekki of grófur og virkar því vel með flestum garntegundum en samt góður fyrir fínt prjón. Á prjónunum er stærð prjónsins merkt, bæði evrópskt stærð og amerísk og eftir þó nokkra notkun virðist stærðin ekkert nuddast af. Það sem grípur helst er þó liturinn á prjónunum en það eru ekki margir prjónar á markaðnum með svona gráum tón í bland við jarðarliti. Þeir eru ótrúlega fallegir og gera prjónið, í hvaða lit sem það er, fallegra fyrir augað.
Reviews
There are no reviews yet.